
FEBRÚARFERÐ TIL KÚBU 2023
HAVANA-TRINIDAD-LAS TERRAZAS
10. - 23.febrúar 2023 | TVÆR VIKUR
INNIFALIÐ Í FERÐUM OKKAR TIL KÚBU

14 daga ferð til Kúbu og Kanada
Saga, matur, tónlist, sól, frábærir staðir, strendur og mannlíf. Allt þetta í þessari frábæru 14 daga ferð um stóran hluta Kúbu og endað er á hvítum ströndum Karíbahafsins.
Við fljúgum til Varadero og keyrum síðan til höfuðborgarinnar Havana þar sem við gistum í fjórar nætur. Borgin iðar af lífi með tónlist og einstakri stemningu á hverju horni. Heimsækjum vistvæna þorpið Las Terrazas um klukkutíma fyrir utan Havana. Mikil náttúrufegurð og dýralíf. Smökkum besta kaffi á Kúbu og borðum hádegsverð með útsýni yfir svæðið.
Daginn eftir keyrum við suður til Trinidad sem er einn elsti bær í Ameríkunum. Þar lærum við um ótrúlega sögu svæðisins og fræðumst um þrælasögu landsins. Förum í lestarferð (ef hún er í gangi) um sveitina við Trinidad og heimsækjum Playa Girón þar sem CIA reyndu árangurslausa Svínaflóainnrás. Ferðinni lýkur með þriggja nátta dvöl á 5 stjörnu hóteli í Varadero með öllu inniföldu.
Fararstjóri
Gudni Kristinsson

Hópstjóri
Juan Carlos Suarez Leyva

Ferðatímabil: Febrúar 2023
Hámarksfjöldi: 25-30 einstaklingar
Innifalið í verði:
-
Flug frá Íslandi til Toronto og til baka með Icelandair. Innrituð taska 23 kg og ein handfarangurstaska.
-
Flug frá Kanada til Kúbu og til baka með Westjet. Innrituð taska 23 kg og ein handfarangurstaska.
Í Kanada:
-
Gisting í eins eða tveggja manna herbergjum án morgunverðar á Alt Hotel Toronto.
Á Kúbu:
-
Akstur til og frá flugvelli
-
Vegabréfsáritun
-
Allar ferðir og skemmtanir/afþreying sem eru í ferðalýsingu
-
Gisting í sjö nætur á heimahótelum (B&B)
-
Þrjár nætur á 5 stjörnu hóteli með öllu inniföldu*
-
Morgunmatur alla daga
-
Gjafapoki með kúbönskum vörum
-
Íslensk og kúbönsk leiðsögn
Ekki innifalið:
-
eTA umsókn til Kanda (kostar CAD 7)
-
Matur og drykkur (fyrir utan það sem innifalið er í ferðapakkanum)
-
Valfrjáls bíltúr á gömlum amerískum bílum*
-
Afþreying og skemmtanir á eigin vegum
-
Sérferð til Niagarafossa (viðbót)
-
Þjórfé á Kúbu

GISTING Á KÚBU-B&B
ATH: allar heimagistingarnar og hótel hafa verið samþykktar af okkur. Engin heimagisting er eins og þetta eru ekki hótel. Öll herbergin hafa loftkælingu, þægileg rúm, kæliskápa í herberginu eða fyrir utan. Morgunmatur er innifalinn í öllum gistingum.
FERÐALÝSING
GISTISTAÐIR
-
2 nætur í Toronto
-
4 nætur í Havana
-
3 nætur í Trinidad, Casilda
-
3 nætur í Varadero Resort Beach

10.febrúar
Flug frá Íslandi til Kanada með Icelandair™
17:00 Reykjavík (KEF)
17:55 Toronto (YYZ)
Flugtími 5 klst., 55 mín, beint flug
Gistum á ALT Hotel Toronto, nálægt flugvellinum í eina nótt
(ath án morgunverðar)

11.febrúar
Morgunflug frá Kanada til Varadero, Kúbu með WestJet™
10:00 TORONTO (YYZ)
13:30 VARADERO-KUBA (VRA)
Flugtími 3 klst., 30 mín., beint flug
-
Akstur frá Varadero til Havana.
-
Innritun í B&B gistingu í Havana
-
Hópkvöldverður í Havana (ekki innifalinn)

12.febrúar
-
Byrjum daginn að keyra um á gömlum bílum. (ekki innifalinn).
-
Heimsækjum Byltingatorgið í Havana. Borgarferð um gömlu Havana þar sem við heimsækjum sögufræga staði eins og Capitolio, Plaza Vieja, Plaza de armas og marga aðra fræga og síður fræga staði.
-
Hádegisverður í "Old Havana" (ekki innifalinn)
-
Buena Vista Social Club "kvöldverður og sýning" (ekki innifalinn)

13.febrúar
-
Danssýning um morguninn "Gran Fiesta de Danza með Yaliuska" Frábærir dansarar og þetta er bara til að hafa gaman og dilla sér aðeins (ekki innifalið).
-
Hádegisverður (ekki innifalinn)
-
Seinnipartinn heimsækjum í Fusterlandia og skoðum ótrúleg listaverk þar.
-
Rútuferð um úthverfi Havana.
-
Skoðum Vedado-hverfið og endum á Hotel Nacional.

14.febrúar
-
Dagsferð til Las terrazas. Leggjum af stað snemma. Héraðið er þekkt fyrir ótrúlega náttúrufegurð.
-
Hádegisverður í "Buena Vista" veitingahús (ekki innifalinn)
-
Akstur til Havana.

15.febrúar
-
Akstur til Casilda, Trinidad. Stoppum reglulega á leiðinni til að skoða umhverfið og teygja úr okkur.
-
Heimsækjum Parque Nacional Ciénaga de Zapata-þjóðgarðinn. Þar förum við á ströndina og skoðum kóralinn. Einnig tími til að synda og njóta sólarinnar.
-
Hádegismatur og drykkir í boði Kúbuferða.
-
Innritun í B&B gistingu í Casilda
-
Hópkvöldverður á frábærum veitingastað í Casilda. (ekki innifalinn)

16.febrúar
-
Ferð um Trinidad sem er á Heimsminjaskrá UNESCO.
-
Hóphádegisverður (ekki innifalinn)
-
Hópkvöldverður í Casilda (ekki innifalinn)

17.febrúar
-
Förum í ferð til Valle de los Ingenios og Manaca Iznaga sem var einn stærsti búgarður landsins. Þar voru rúmlega 30.000 þrælar á meðan Spánverjar réðu Kúbu. Ótrúleg saga og einstakt umhverfi. Bærinn er á Heimsminjaskrá UNESCO. Til að komast þangað þá ferðumst með einni elstu lest sem til er á Kúbu.
-
Rútuferð til sykurplantekurnar Ingenio San Isidro. Átakanleg saga þrælahalds á Kúbu.
-
Hóphádegisverður á ströndinni. (ekki innifalinn)
-
Cuban Fiesta veisla í Casilda (ekki innifalinn)

18.febrúar
-
Akstur til Varadero
-
Gistum á Hotel Iberostar Varadero sem er 5 stjörnu hótel með öllu innföldu. Gistum þar í þrjár nætur.

19.febrúar
-
Strandardagur á Varadero.
-
Möguleiki á skoðunarferðum eða annarri afþreyingu.
-
Hægt að velja um köfun, siglingar, sjóstöng og jeppaferðir (ekki innifalið).

20.febrúar
-
Strandardagur á Varadero. Möguleiki að fara í skoðunarferð eða njóta annarrar afþreyingar.

21.febrúar
-
Njóta sólarinnar um morguninn. Keyrum til flugvallarins í Varadero. Aksturstími 30 mín.
-
Flug með Westjet frá Varadero kl 14:30. Komutimi 17:55 til Toronto.
-
-----
-
Aukanótt í Toronto. +1 dagur

22.febrúar (lendum 23.febrúar)
-
Dagsferð til Niagarafossa kl 08:00. Komin aftur um kl 17:00 á flugvöllinn (ekki innifalið).
-
19:45 frá Toronto.
-
06:05 +1 dagur, komutimi til Keflavik.
-
Flugtími 5 klst., 20 mín., beint flug.


Innifalið í ferðinni er
GJAFAPOKI MEÐ KÚBÖNSKUM VÖRUM