VERÐ frá 389.900 kr á mann
*Verð per mann í tvíbýli.
**verð í einbýli er 49.900 aukalega
7 - 20. apríl 2022 | 14 dagar
INNIFALIÐ Í FERÐUM OKKAR
14 daga ferð til Kúbu
Saga, matur, tónlist, sól, frábærir staðir, strendur og mannlíf. Allt þetta í þessari frábæru 14 daga ferð um stóran hluta Kúbu og endað er á hvítum ströndum Karíbahafsins.
Við fljúgum til Varadero og keyrum síðan til höfuðborgarinnar Havana þar sem við gistum í þrjár nætur. Borgin iðar af mannlífi með tónlist og einstakri stemningu á hverju horni. Frá Havana heimsækjum við friðlandið og vistvæna þorpið, "Las Terrazas". Kynnumst þar einstöku samfélagi. Daginn eftir keyrum við suður til Trinidad sem er einn elsti bær í Ameríkunum. Þar lærum við um ótrúlega sögu svæðisins og fræðumst um þrælasögu landsins. Förum í lestarferð um sveitina við Trinidad og heimsækjum Playa Girón þar sem CIA reyndu árangurslausa Svínaflóainnrás. Ferðinni lýkur með þriggja nátta dvöl á 5 stjörnu hóteli í Varadero með öllu inniföldu.
Fararstjóri
Gudni Kristinsson
Hópstjóri
J.Carlos Suarez L.
Ferðatímabil: Apríl 2022
Innifalið í verði:
-
Flug frá Íslandi til Toronto og til baka með Icelandair. Innrituð taska 23 kg og ein handfarangurstaska.
-
Flug frá Kanada til Kúbu og til baka með Westjet. Innrituð taska 23 kg og ein handfarangurstaska.
Í Kanada:
Á Kúbu:
-
Akstur til og frá flugvelli
-
Vegabréfsáritun
-
Allar ferðir og skemmtanir/afþreying sem eru í ferðalýsingu
-
Gisting í sjö nætur á heimahótelum (B&B)
-
Þrjár nætur á 5 stjörnu hóteli með öllu inniföldu*
-
Morgunmatur alla daga
-
Gjafapoki með kúbönskum vörum
-
Íslensk og kúbönsk leiðsögn
Ekki innifalið:
-
Þjórfé í ferðinni fyrir leiðsögn/ökumann og þjónustu á Kúbu.
-
Matur og drykkur (fyrir utan það sem innifalið er í ferðapakkanum)
-
Valfrjáls bíltúr á gömlum amerískum bílum*
-
Afþreying og skemmtanir á eigin vegum
-
Sérferð til Niagarafossa (viðbót)
Gisting á Kúbu-B&B
ATH: allar heimagistingarnar og hótel hafa verið samþykktar af okkur. Engin heimagisting er eins og þetta eru ekki hótel. Öll herbergin hafa loftkælingu, þægileg rúm, kæliskápa í herberginu eða fyrir utan. Morgunmatur er innifalinn í öllum gistingum.
Kort
Ferðaáætlun
Dagur 2
Morgunflug frá Kanada til Varadero, Kúbu með WestJet™
10:00 TORONTO (YYZ)
13:30 VARADERO-KUBA (VRA)
Flugtími 3 klst., 30 mín., beint flug
-
Akstur frá Varadero til Havana.
-
Innritun í B&B gistingu í Havana
-
Hópkvöldverður í Havana (ekki innifalinn)
Dagur 4
-
Salsasýning og -kennsla um morguninn "Gran Fiesta de Salsa" (ekki innifalið)
-
Seinnipartinn heimsækjum við Fusterlandia-götuna og skoðum ótrúleg listaverk þar.
-
Rútuferð um úthverfi Havana.
-
Heimsækjum Byltingatorgið í Havana.
-
Skoðum Vedado-hverfið og endum á Hotel National.
-
Valfrjáls bíltúr á gömlum amerískum bílum (ekki innifalið)
Dagur 6
-
Akstur til Casilda, Trinidad. Stoppum reglulega á leiðinni til að skoða umhverfið og teygja úr okkur.
-
Heimsækjum Parque Nacional Ciénaga de Zapata-þjóðgarðinn. Þar förum við á ströndina og skoðum kóralinn. Einnig tími til að synda og njóta sólarinnar.
-
Hádegismatur og drykkir í boði Kúbuferða.
-
Innritun í B&B gistingu í Casilda
-
Hópkvöldverður á frábærum veitingastað í Casilda. (ekki innifalinn)
Dagur 8
-
Förum í ferð til Valle de los Ingenios sem var einn stærsti búgarður landsins. Þar voru rúmlega 30.000 þrælar á meðan Spánverjar réðu yfir Kúbu. Ótrúleg saga og einstakt umhverfi. Bærinn er á Heimsminjaskrá UNESCO. Til að komast þangað þá ferðumst með einni af aðeins þremur gufulestum á Kúbu.
-
Frjáls tími í Trinidad eða frjáls tími á ströndinni.
-
Cuban Fiesta veisla í Casilda (ekki innifalinn). *
Dagur 10
-
Strandardagur á Varadero.
-
Möguleiki á skoðunarferðum eða annarri afþreyingu.
-
Hægt að velja um köfun, siglingar, sjóstöng og jeppaferðir (ekki innifalið).
Dagur 12
-
Njóta sólarinnar um morguninn. Keyrum til flugvallarins í Varadero. Aksturstími 30 mín.
-
Flug með Westjet frá Varadero kl 14:40. Komutimi 17:00 til Toronto.
-
-----
-
Aukanótt í Toronto. +1 dagur
Dagur 1
Flug frá Íslandi til Kanada með Icelandair™
17:00 Reykjavík (KEF)
17:55 Toronto (YYZ)
Flugtími 5 klst., 55 mín, beint flug
Gistum á ALT Hotel Toronto, nálægt flugvellinum í eina nótt
(ath án morgunverðar)
Dagur 3
-
Borgarferð um Gömlu Havana þar sem við heimsækjum sögufræga staði eins og Capitolio, Plaza Vieja, Plaza de armas og marga aðra fræga og síður fræga staði.
-
Frjáls tími til að uppgötva borgina síðdegis.
Dagur 5
-
Dagsferð til "Las Terrazas". Leggjum af stað snemma. Héraðið er þekkt fyrir ótrúlega náttúrufegurð.
-
Hádegisverður í Las Terrazas (ekki innifalinn)
-
Frjáls tími í Las Terrazas
-
Frjálst kvöld í Havana.
Dagur 7
-
Ferð um Trinidad sem er á Heimsminjaskrá UNESCO.
-
Hóphádegisverður (ekki innifalinn)
-
Hópkvöldverður í Casilda (ekki innifalinn)
Dagur 13 og 14
-
Dagsferð til Niagarafossa kl 08:00. Komin aftur um kl 17:00 á flugvöllinn (ekki innifalið).
-
19:30 frá Toronto.
-
06:05 +1 dagur, komutimi til Keflavik.
-
Flugtími 5 klst., 20 mín., beint flug.
Innifalið í ferðinni er
GJAFAPOKI MEÐ KÚBÖNSKUM VÖRUM