Viltu tryggja þér sæti?
Af hverju Kosta Ríka?

Kosta Ríka er land þar sem náttúran ræður ríkjum. Eldfjöll, regnskógar, fossar, villt dýralíf og Kyrrahafsstrendur mynda einstaka blöndu sem fá lönd í heiminum geta boðið upp á.
Við höfum skipulagt ferðina þannig að þú fáir að upplifa fjölbreytileika landsins án þess að vera stöðugt á ferðinni. Í stað þess að keyra langar vegalengdir á hverjum degi dveljum við í nokkrar nætur á hverjum stað og gefum okkur tíma til að njóta umhverfisins.
Á ferðinni heimsækjum við þrjú ólík svæði þar sem hvert þeirra hefur sinn eigin karakter. Við göngum um regnskóga og hengibrýr, skoðum stórbrotin eldfjöll, náttúrulegar heitar laugar og fossa, kynnumst ríkulegu dýralífi og heimsækjum kaffi- og kakóbýli þar sem við fáum innsýn í eina mikilvægustu menningu landsins.
Göngurnar eru léttar til miðlungs erfiðar og henta flestum. Þeir sem vilja geta bætt við afþreyingu eða lengri göngum á frítíma sínum, en jafnframt er nægur tími til að slaka á og njóta ferðarinnar.

Síðustu dagana dveljum við við Kyrrahafsströndina þar sem við njótum hlýrrar stemningar, gullinna sandstranda og stórbrotinna sólsetra sem eru meðal þeirra fallegustu í Mið-Ameríku. Þar lýkur ferðinni á rólegan og eftirminnilegan hátt áður en haldið er heim til Íslands.
Fararstjóri ferðarinnar er Guðni Kristinsson sem hefur áratuga reynslu af fararstjórn og hópferðum víða um heim. Með persónulegri þjónustu, íslenskri fararstjórn og góðri skipulagningu leggjum við áherslu á að hver ferð verði bæði þægileg og eftirminnileg.
Komdu með okkur til Kosta Ríka og upplifðu land þar sem náttúran, dýralífið og lífsgleðin fara saman á einstakan hátt.
Fararstjóri
Guðni

Hópstjóri
Carlos

Ferðalýsing
Upplýsingar um ferðina
Ferðatímabil: febrúar 2027
Hópstærð: Hámark 24-28 ferðafélagar
Fararstjórn: Íslensk fararstjórn allan tímann ásamt staðarleiðsögn í Kosta Ríka
Þetta er innifalið í ferðinni
Flug frá Íslandi til Kosta Ríka með Icelandair og WestJet
Innrituð taska (23 kg) og handfarangur
Tvær nætur í Toronto á leiðinni
Níu nætur á völdum hótelum í Kosta Ríka
Morgunverður alla daga í Kosta Ríka
Upplifanir í Kosta Ríka
Akstur til og frá flugvelli
Aðgangur að þjóðgörðum og náttúrusvæðum
Leiðsögn í skýjaregnskóginum í Mistico Park
Fuglaskoðun með leiðsögn
Heimsókn í Las Pumas dýraathvarf
Kaffi- og kakóupplifun
Matreiðslunámskeið með staðbundinni matarmenningu
Sólseturssigling á Kyrrahafinu
Það sem gerir ferðina sérstaka
Ferðast með íslenskum fararstjóra frá upphafi til enda
Litill og þægilegur hópur
Tími til að njóta hvers staðar án þess að vera alltaf á ferðinni
Sambland af náttúru, dýralífi, menningu og afslöppun
Ekki innifalið
eTA umsókn fyrir Kanada (7 CAD). Við sendum allar upplýsingar og aðstoðum við ferlið.
Hádegis- og kvöldverðir sem ekki eru sérstaklega taldir upp.
Drykkir og persónuleg útgjöld.
Afþreying í frítíma.
Sérferð til Niagara Falls (valfrjálst aukaval).
Þjórfé í Kosta Ríka.
Forfalla- og ferðatryggingar.
Vel valin hótel á fallegum stöðum









Við veljum hótelin af kostgæfni með áherslu á góða staðsetningu, þægindi og þjónustu. Eftir dag fullan af ævintýrum geturðu slakað á við sundlaug eða í heitum potti, notið góðs kvöldverðar og byrjað næsta dag á morgunverði sem er innifalinn alla ferðina.
Svona ferðumst við
um Kosta Ríka
Akstursleiðirnar eru skipulagðar þannig að ferðalagið sjálft verði hluti af upplifuninni, með fallegum stoppum og nægum tíma til að njóta landslagsins.

Dagskrá ferðar
GISTISTAÐIR
-
2 nætur í Toronto, Kanada
-
3 nætur í Ricón de la Vieja
-
3 nætur í La Fortuna
-
3 nætur við Tamarindo strönd
Vinsamlega athugið: Smá breytingar geta orðið á ferðinni.

31. janúar 2027
Flug frá Íslandi til Kanada með Icelandair
17:00 Reykjavík (KEF)
19:10 Toronto (YYZ)
Flugtími 5 klst., 55 mín, beint flug
Síðdegisflug til Toronto með Icelandair frá Keflavík. Lendum í borginni um kl 19:00 og eftir landamæraeftirlit förum við saman í loftlest á hótelið sem er nálægt flugvellinum. Frjálst kvöld í Toronto þar sem þið getið slappað af eða farið niður í bæ og upplifað þessa frábæru stórborg. Góður ítalskur veitingastaður er á hótelinu.

1. febrúar 2027
Förum snemma saman út á flugvöll. Hægt er að kaupa léttan morgunverð á hótelinu en eftir innritun eru margir veitingastaðir sem bjóða uppá mat. Fljúgum með WestJet til Liberia borgar í norðvestur Kosta Ríka. Flugið er um 5 klst og lendum um kl 13:00.
Hittum leiðsögumanninn okkar á vellinum og keyrum þaðan til Spa hótelið. Hótelið er í frábæru umhverfi með fiðrildagarð og heitum pottum og laugum. Borðum saman kvöldverð á veitingastað hótelsins.

2. febrúar 2027
Gönguferð dagsins er að fossum sem eru nálægt hótelinu okkar. Einstök náttúrufegurð á leiðinni með fjölbreyttu dýra-og plöntulífi. Höfum góðan tíma til að slaka á við fossinn áður en haldið er aftur að hótelinu.
Síðdegis slökum við á í þessu fallega umhverfi hótelsins.

3. febrúar 2027
Njótum morgunins á hótelinu okkur en fyrir þau sem vilja þá tökum við daginn mjög snemma og förum í fuglaskoðun. Göngum um svæðið þegar fuglalífið er að taka við sér. Auðvitað viljum við reyna að sjá tukan fugl. Eftir gönguna þá er tími til að slappa aðeins af en síðan förum við um hádegi í heimókn til fjölskyldu í þorpinu til að læra um matgerðarlist í Kosta Ríka. Við eldum saman og hittum innfædda. Algjöt Pura Vida og frábær matur sem við fáum að borða.

4. febrúar 2027
Þennan dag erum við að færa okkur á milli svæða þannig þetta er lengsti keyrsludagurinn en við ætlum líka að upplifa margt á leiðinni.
Á leiðinni stoppum við á svæði sem er þekkt fyrir að vera með mikið að letidýrum og förum í göngutúr að finna þau. Ótrúleg upplifun að sjá þessi einstöku dýr í sínu náttúrlega umhverfi.
Förum í hádegismat á litlum sveitabæ þar sem við hægt er að smakka hefðbundin mat frá svæðinu og auðvitað að drekka gott kaffi á eftir.
Eftir það keyrum við átt að Arenalsvæðinu og bænum La Fortuna þar sem við gistum í þrjár nætur á frábæru Spa hóteli. Algjör paradís með útsýni að eldjallinu og með frábærar sundlaugar og spa. Kvöldið tekið á hótelinu eftir langan dag.

5. febrúar 2027
Það er mögnuð upplifun að ganga yfir regnskóg en í dag förum við þar sem er búið að búa til brýr og göngustíga fyrir ofan regnskóginn. Einstök lífsreynsla sem mun aldrei gleymast. Þetta er ekki erfið ganga og mikilvægt er að vera með sjónauka til að sjá allt dýralífið sem verður fyrir neðan okkur.
Frjáls eftirmiðdagur annað hvort á hótelinu eða inní La Fortunabæ þar sem er að finna marga bari og skemmtilegar búðir þar sem hægt er að versla.

6. febrúar 2027
Heimsækjum sjálfbæran sveitabæ þar sem þau rækta þjóðardrykk Kosta Ríka: kaffi. Landið er þekkt fyrir að rækta bestu kaffibaunir í heiminum. Við fáum að smakka mismunandi kaffi en fyrir þau sem drekka ekki kaffi þá eru ræktaðar kakóbaunir á bænum líka. Þannig við náum að blanda saman kaffi og súkkulaði. Við förum líka í sérstaka súkkulaðikynningu og smökkum mismunadi gerðir.
Frjáls eftirmiðdagur á Arenalsvæðinu.

7. febrúar 2027
Höldum vestur á bóginn og keyrum í átt að Kyrrahafinu þar sem við gistum síðustu þrjár næturnar í Kosta Ríka. Á leiðinni stoppum við í Centro de Rescate Las Pumas, en það er dýraathvarf.
Þýsk hjón hófu að bjarga dýrum á þessu svæði um 1960 og síðan hefur það undið uppá sig. Hjónin eru bæði fallin frá en stofnunin heldur áfram. Heillandi staður sem manni líður betur eftir að hafa heimsótt.
Keyrum síðan áfram í átt að hótelinu okkar í Tamarindo sem er í bær við ströndina. Tamarindobær er þekktur fyrir líflegt mannlíf, góða veitingastaði og skemmtilega bari. Kvöldið notum við til að slappa af eða fara út á lífið.

8. febrúar 2026
Afslappandi dagur á ströndinni eða við sundlaugarbakkann á hótelinu. Það er einnig möguleiki að fara í köfun eða eitthvað sem ykkur langar til.

9. febrúar 2027
Sigling á Kyrrahafinu í snekkju með ferðafélögum þínum. Förum að morgni á snekkju í stuttri fjarðlægð frá hótelinu. Borðum hádegisverð á bátnum og auðvitað verður barinn opinn.
Hægt að stinga sér til sunds og snorkla í kristaltæru Kyrrahafinu. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður þar sem við erum því miður að kveðja þetta einstaka land.

10. febrúar 2027
Hægt að njóta morgunsólarinnar og fara í sjóinn því flugið er ekki fyrr en eftir hádegi. Tekur um klukkustund að keyra á flugvöllinn þar sem við fljúgum með WestJet til Toronto. Flugið tekur um fimm tíma.
Lendum að kvöldi í Toronto og förum á Alt hótelið til að gista í eina nótt.

11. febrúar 2027
Dagsferð að Nigarafossum fyrir þá sem velja það. Frábær ferð þar sem við borðum hádegisverð í um 150 metra hæð yfir fossunum. Siglum að fossunum, smökkum hlynsíróp og förum í kynningu á ísvíni.
Frjáls tími í litlum bæ sem heitir Niagara on The Lake. Fyrir þau sem vilja versla þá er möguleiki að koma með og fara í outlet verslunarmiðstöð og eyða deginum þar. Fljúgum heim um kvöldið með Icelandair

13. febrúar 2027
Lendum snemma að morgni í Keflavík eftir frábæra ferð til Kosta Ríka.


