Ferð til Kosta Ríka
í nóvember 2024
Ekkert staðfestingargjald.
Hægt er að skipta greiðslum í allt að 3 hluta, með sveigjanlegum greiðsluleiðum.
20.nóv - 2.des 2024
TVÆR VIKUR
UPPSELT
UM FERÐINA
Kosta Ríka: "Pura Vida" er slagorð landsins sem hægt er að þýða á svo marga vegu. Það lýsir landinu svo vel, þetta fallega, hreina og óspillta land með sína ólýsanlegu náttúrufegurð. Fyrir utan alla náttúrufegurðina og dýralífið þá er mannlífið einnig stórkostlegt.
Kosta Rika er eitt af fáum ríkjum heims sem eins og Ísland er ekki með her og þú finnur fyrir öryggi í landinu. Regnskógar, eldfjöll, dýralíf, mannlíf og Kyrrahafið í þessari einstöku ferð til Kosta Ríka með Kúbuferðum-2Go Iceland þar sem nærð að kynnast landinu og fólkinu á sama tíma þú nærð að slappa af.
Ferðin er skipulögð þannig að hún hentar öllum. Ef þig langar að taka því rólega og fara í styttri göngur þá er þetta frábær ferð því þú færð að upplifa margt án þess að þurfa að fara í langar gönguferðir. Ef þig hinsvegar langar að leggja meira á þig þá er hægt að bæta við gönguferðum og afþreyingu á öllum stöðum sem við gistum á. Einnig gistum við í tvær til þrjár nætur á öllum stoppum í Kosta Ríka nema fyrstur nóttina sem þýðir að við þurfum ekki að pakka á hverju kvöldi. Við viljum frekar kynnast nokkrum héruðum vel frekar en að reyna að sjá allt.
Komdu með til Kosta Ríka, litla landsins með stóra hjartað.
Fararstjóri
Guðni Kristinsson
Hópstjóri
Juan Carlos Suarez Leyva
FERÐALÝSING
Ferðatímabil: nóvember 2024
Hópstærð: hámark 20 farþegar.
Innifalið í verði:
-
Flug frá Íslandi til Toronto og til baka með Icelandair. Innrituð taska 23 kg og ein handfarangurstaska.
-
Flug frá Kanada til Kosta Ríka og til baka með Westjet. Innrituð taska 23 kg og ein handfarangurstaska.
Í Kanada:
-
Gisting í eins eða tveggja manna herbergjum án morgunverðar á Alt Hotel Toronto í tvær nætur.
Í Kosta Ríka:
-
Akstur til og frá flugvelli
-
Ferðmannaskattur
-
Allar ferðir og skemmtanir/afþreying sem eru í ferðalýsingu
-
Gisting í 9 nætur á frábærum hótelum
-
Morgunmatur alla daga
-
Upphafs-og lokakvöldverður
-
Þrír hádegisverðir
-
Íslensk farartjórn
-
Innlend staðarleiðsögn
Ekki innifalið:
-
eTA umsókn til Kanda (kostar $7 CAD). Við sendum allar upplýsingar, ekki sækja um sjálf.
-
Þær máltíðir sem ekki eru taldar upp í innifalið, drykkjarföng og persónuleg útgjöld.
-
Afþreying og skemmtanir á eigin vegum
-
Sérferð til Niagarafossa (viðbót)
-
Þjórfé í Kosta Ríka
-
Forfalla- og ferðatryggingar (kreditkorta-og heimilstryggingar eru yfirleitt nóg)
Gistingar í Kosta Ríka
ATH: Öll herbergin hafa loftkælingu, þægileg rúm og eru þrifin á hverjum degi. Öll hafa sundlaugar/heita potta og mörg hver aðra líkamsræktaraðstöðu. Góðir veitinarstaðir á öllum hótelum. Morgunmatur er innifalinn alla daga.
DAGSKRÁ FERÐAR
GISTISTAÐIR
-
2 nætur í Toronto, Kanada
-
1 nótt í Liberia
-
2 nætur í Ricon de la Vieja
-
3 nætur í La Fortuna
-
3 nætur við Tamarindo strönd
20.nóvember | Dagur 1
Flug frá Íslandi til Kanada með Icelandair
17:00 Reykjavík (KEF)
19:10 Toronto (YYZ)
Flugtími 5 klst., 55 mín, beint flug
Síðdegisflug til Toronto með Icelandair frá Keflavík. Lendum í borginni um kl 18:00 og eftir landamæraeftirlit förum við saman í loftlest á Alt Hótel sem er nálægt flugvellinum. Frjálst kvöld í Toronto þar sem þið getið slappað af eða farið niður í bæ og upplifað þessa frábæru stórborg. Góður ítalskur veitingastaður er á hótelinu.
21.nóvember | Dagur 2
Förum snemma saman út á flugvöll. Hægt er að kaupa léttan morgunverð á hótelinu en eftir innritun eru margir veitingastaðir sem bjóða uppá mat. Fljúgum með WestJet til Liberia borgar í norðvestur Kosta Ríka. Flugið er um 5 klst og lendum um kl 14:00.
Hittum leiðsögumanninn okkar á vellinum og keyrum þaðan á Hilton Inn hótelið. Gönguferð um Liberiuborg þar sem við fáum fyrsta smjörþefinn af menningunni í Kosta Ríka. Kynning á ferðinni þegar við komum á hótelið og sameiginlegur hópkvöldverður.
22.nóvember | Dagur 3
Keyrum norður í þjóðgarðinn Rincón de la Vieja þar sem er finna einstakt dýralíf auk afþreyingar. Við förum í gönguferð um skýjaregnskóginn í þjóðgarðinum þar sem þið munið sjá fjölbreytt dýralíf t.d. er möguleiki að sjá letidýr í sínu náttúrulega umhverfi. Ef útsýnið er gott þá sjáum við eldfjöllin í fjarlægð.
Gistum í tvær nætur á Borinque Thermal Resort sem er með fullt af náttúrlaugum þar sem gott er að hvíla lúin bein eftir göngu dagsins.
23.nóvember | Dagur 4
Fyrir þau sem vilja þá förum við í gönguferð þá um frumskóginn. Dýra-og plöntulífið er ótrúlegt og þar eiga allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Fuglalífið á svæðinu er mikið og ef við erum heppin þá sjáum við páfagauka og flamengóa í sínu náttúrlegu umhverfi.
Þau sem vilja slappa meira af þá er hægt að fara í leirböð og nudd á hótelinu og njóta veðursældarinnar á svæðinu.
24.nóvember | Dagur 5
Þennan dag erum við að færa okkur á milli svæða þannig þetta er lengsti keyrsludagurinn en við ætlum líka að upplifa margt á leiðinni. Keyrum til fenjasvæðis Caño Negro Refuge sem er nálægt landamærunum að Nigaragua.
Þar er hægt að sjá skjaldbökur, jagúar, tígurketti og krókudíla. Við förum í siglingu á fenjasvæðinu þar sem gefst góður tími til að ná myndum af fuglalífinu. Þetta er svæði sem færri koma á, og er einstök upplifun.
Eftir það keyrum við átt að Arenalsvæðinu og bænum La Fortuna þar sem við gistum í þrjár nætur á frábæru fimm stjörnu hóteli, Arenal Kioro Suiets & Spa. Algjör paradís með útsýni að eldjallinu og með frábærar sundlaugar og spa. Kvöldið tekið á hótelinu eftir langan dag.
25.nóvember | Dagur 6
Það er mögnuð upplifun að ganga yfir regnskóg en í dag förum við þar sem er búið að búa til brýr og göngustíga fyrir ofan regnskóginn. Einstök lífsreynsla sem mun aldrei gleymast. Þetta er ekki erfið ganga og mikilvægt er að vera með sjónauka til að sjá allt dýralífið sem verður fyrir neðan okkur.
Frjáls eftirmiðdagur annað hvort á hótelinu eða inní La Fortunabæ þar sem er að finna marga bari og skemmtilegar búðir sem hægt er að versla.
26.nóvember | Dagur 7
Heimsækjum sjálfbæran sveitabæ þar sem þau rækta þjóðardrykk Kosta Ríka: kaffi. Landið er þekkt fyrir að rækta eitt bestu kaffibaunir í heiminum. Við fáum að smakka mismunadi kaffi en fyrir þau sem drekk ekki kaffi þá eru ræktaðar kakóbaunir á bænum líka. Þannig við náum að blanda saman kaffi og súkkulaði. Við förum líka í sérstakan súkkulaðikynningu og smökkum mismunadi gerðir.
Frjáls eftirmiðdagur í Arenalsvæðinu
27.nóvember | Dagur 8
Höldum vestur á bóginn og keyrum í átt að Kyrrahafinu þar sem við gistum síðustu þrjár næturnar í Kosta Ríka. Á leiðinni stoppum við í Centro de Rescate Las Pumas, en það er dýraathvarf.
Þýsk hjón hófu að bjarga dýrum á þessu svæði um 1960 og síðan hefur það undið uppá sig. Hjónin eru bæði fallin frá en stofnunin heldur áfram. Heillandi staður sem manni líður betur eftir að hafa heimsótt.
Keyrum síðan áfram í átt að hótelinu okkar, Tamarindo Diria Beach Resort sem er í bæ við ströndina. Tamarindobær er þekktur fyrir líflegt mannlíf, góða veitingastaði og skemmtilega bari. Kvöldið notum við til að slappa af eða fara út á lífið.
28.nóvember | Dagur 9
Afslappandi dagur á ströndinni eða við sundlaugarbakkann á hótelinu. Það er einnig möguleiki að fara í köfun eða eitthvað sem ykkur langar til.
29.nóvember | Dagur 10
Sigling á Kyrrahafinu í snekkju með ferðafélögum þínum. Förum að morgni á snekkju í stuttri fjarðlægð frá hótelinu. Borðum hádegisverð á bátnum og auðvitað verður barinn opinn.
Hægt að stinga sér til sunds og snorkla í kristaltæru Kyrrahafinu. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður þar sem við erum því miður að kveðja þetta einstaka land.
30.nóvember | Dagur 11
Hægt að njóta morgunsólarinnar og fara í sjóinn því flugið er ekki fyrr en eftir hádegi. Tekur um klukkustund að keyra á flugvöllinn þar sem við fljúgum með WestJet til Toronto. Flugið tekur um fimm tíma.
Lendum að kvöldi í Toronto og föru á Alt hótelið til að gista í eina nótt.
1.desember | Dagur 12
Dagsferð að Nigarafossum fyrir þá sem velja það. Frábær ferð þar sem við borðum hádegisverð í um 150 metra hæð yfir fossunum. Siglum að fossunum, smökkum hlynsíróp og förum í kynningu á ísvíni.
Frjáls tími í litlum bæ sem heitir Niagara on The Lake. Fyrir þau sem vilja versla þá er möguleiki að koma með og fara í outlet verslunarmiðstöð og eyða deginum þar. Fljúgum heim um kvöldið með Icelandair
2.desember | Dagur 13
Lendum snemma að morgni í Keflavík eftir frábæra ferð til Kosta Ríka.