Kosta Ríka
Hópferð • Nóvember 2027

14. - 25.nóvember 2027
TVÆR VIKUR
Um Ferðina
Kosta Ríka – Pura Vida
*Pura Vida* er slagorð Kosta Ríka og lýsir vel þeirri einstöku tilfinningu sem fylgir þessu fallega landi. Hér sameinast ótrúleg náttúra, fjölbreytt dýralíf, hlýlegt mannlíf og afslappað andrúmsloft sem erfitt er að finna annars staðar.
Í þessari ferð með Kúbuferðum - 2Go Iceland færð þú ekki aðeins að sjá helstu perlur Kosta Ríka heldur einnig að kynnast landinu, fólkinu og menningunni á rólegum og þægilegum ferðamáta.
Ferð þar sem upplifunin skiptir máli
Við leggjum áherslu á persónulega hópferð þar sem þú ferðast með íslenskum fararstjórum sem fylgja hópnum frá upphafi til enda. Guðni Kristinsson leiðir ferðina og með honum er Carlos, en saman höfum við byggt upp náið samstarf við staðbundna aðila eftir fjölmargar ferðir til Kosta Ríka.
Margir ferðafélagar okkar hafa ferðast með okkur áður eða koma eftir meðmælum frá vinum og fjölskyldu. Þannig hefur myndast einstakur ferðahópur þar sem fólk deilir upplifunum saman og margir hitta aftur gamla ferðafélaga í nýjum ævintýrum.
Kynnist Kosta Ríka á góðum hraða
Við höfum skipulagt ferðina þannig að þú fáir tíma til að njóta hvers staðar. Í stað þess að flýta okkur á milli ótal áfangastaða gistum við yfirleitt tvær til þrjár nætur á hverjum stað og fáum þannig betri tilfinningu fyrir svæðinu.
Ferðin sameinar:
-
regnskóga og eldfjöll
-
einstakt dýralíf
-
staðbundna matarmenningu
-
kaffi og kakóupplifanir
-
Kyrrahafsströndina
-
afslöppun og góða hóteldvöl
Hvort sem þú vilt njóta rólegra daga eða taka þátt í meiri afþreyingu þá er hægt að laga upplifunina að þínum hraða.
Komdu með okkur til Kosta Ríka
Litla landsins með stóra hjartað.
Upplifðu náttúruna, fólkið og ævintýrin í góðum félagsskap með Kúbuferðum.
Fararstjóri
Guðni Kristinsson

Hópstjóri
Carlos Suarez Leyva

Ferðalýsing
Upplýsingar um ferðina
Ferðatímabil: nóvember 2027
Hópstærð: Hámark 24-26 ferðafélagar
Fararstjórn: Íslensk fararstjórn allan tímann ásamt staðarleiðsögn í Kosta Ríka
Þetta er innifalið í ferðinni
Flug og gisting
✓ Flug frá Íslandi til Kosta Ríka með Icelandair og WestJet
✓ Innrituð taska (23 kg) og handfarangur
✓ Tvær nætur í Toronto á leiðinni
✓ Níu nætur á völdum hótelum í Kosta Ríka
✓ Morgunverður alla daga
Upplifanir í Kosta Ríka
✓ Akstur til og frá flugvelli
✓ Aðgangur að þjóðgörðum og náttúrusvæðum
✓ Leiðsögn í skýjaregnskóginum í Mistico Park
✓ Fuglaskoðun með leiðsögn
✓ Heimsókn í Las Pumas dýraathvarf
✓ Kaffi- og kakóupplifun
✓ Matreiðslunámskeið með staðbundinni matarmenningu
✓ Sólseturssigling á Kyrrahafinu
Það sem gerir ferðina sérstaka
✓ Ferðast með íslenskum fararstjóra frá upphafi til enda
✓ Litill og þægilegur hópur
✓ Tími til að njóta hvers staðar án þess að vera alltaf á ferðinni
✓ Sambland af náttúru, dýralífi, menningu og afslöppun
Ekki innifalið
-
eTA umsókn fyrir Kanada (7 CAD). Við sendum allar upplýsingar og aðstoðum við ferlið.
-
Hádegis- og kvöldverðir sem ekki eru sérstaklega taldir upp.
-
Drykkir og persónuleg útgjöld.
-
Afþreying í frítíma.
-
Sérferð til Niagara Falls (valfrjálst aukaval).
-
Þjórfé í Kosta Ríka.
-
Forfalla- og ferðatryggingar.
Gistingar í Kosta Ríka









Ferðin okkar um Kosta Ríka

Dagskrá Ferðar
GISTISTAÐIR
-
2 nætur í Toronto, Kanada
-
3 nætur í Ricón de la Vieja
-
3 nætur í La Fortuna
-
3 nætur við Tamarindo strönd
Vinsamlega athugið: Smá breytingar geta orðið á ferðinni.

14 nóvember 2027
Flug frá Íslandi til Kanada með Icelandair
17:00 Reykjavík (KEF)
19:10 Toronto (YYZ)
Flugtími 5 klst., 55 mín, beint flug
Síðdegisflug til Toronto með Icelandair frá Keflavík. Lendum í borginni um kl 19:00 og eftir landamæraeftirlit förum við saman í loftlest á hótelið sem er nálægt flugvellinum. Frjálst kvöld í Toronto þar sem þið getið slappað af eða farið niður í bæ og upplifað þessa frábæru stórborg. Góður ítalskur veitingastaður er á hótelinu.

15 nóvember 2027

Förum snemma saman út á flugvöll. Hægt er að kaupa léttan morgunverð á hótelinu en eftir innritun eru margir veitingastaðir sem bjóða uppá mat. Fljúgum með WestJet til Liberia borgar í norðvestur Kosta Ríka. Flugið er um 5 klst og lendum um kl 13:00.
Hittum leiðsögumanninn okkar á vellinum og keyrum þaðan til Spa hótelið. Hótelið er í frábæru umhverfi með fiðrildagarð og heitum pottum og laugum. Borðum saman kvöldverð á veitingastað hótelsins.
16 nóvember 2027
Gönguferð dagsins er að fossum sem eru nálægt hótelinu okkar. Einstök náttúrufegurð á leiðinni með fjölbreyttu dýra-og plöntulífi. Höfum góðan tíma til að slaka á við fossinn áður en haldið er aftur að hótelinu.
Síðdegis slökum við á í þessu fallega umhverfi hótelsins.

17 nóvember 2027

Njótum morgunins á hótelinu okkur en fyrir þau sem vilja þá tökum við daginn mjög snemma og förum í fuglaskoðun. Göngum um svæðið þegar fuglalífið er að taka við sér. Auðvitað viljum við reyna að sjá tukan fugl. Eftir gönguna þá er tími til að slappa aðeins af en síðan förum við um hádegi í heimókn til fjölskyldu í þorpinu til að læra um matgerðarlist í Kosta Ríka. Við eldum saman og hittum innfædda. Algjöt Pura Vida og frábær matur sem við fáum að borða.
18 nóvember 2027
Þennan dag erum við að færa okkur á milli svæða þannig þetta er lengsti keyrsludagurinn en við ætlum líka að upplifa margt á leiðinni.
Á leiðinni stoppum við á svæði sem er þekkt fyrir að vera með mikið að letidýrum og förum í göngutúr að finna þau. Ótrúleg upplifun að sjá þessi einstöku dýr í sínu náttúrlega umhverfi.
Förum í hádegismat á litlum sveitabæ þar sem við hægt er að smakka hefðbundin mat frá svæðinu og auðvitað að drekka gott kaffi á eftir.
Eftir það keyrum við átt að Arenalsvæðinu og bænum La Fortuna þar sem við gistum í þrjár nætur á frábæru Spa hóteli. Algjör paradís með útsýni að eldjallinu og með frábærar sundlaugar og spa. Kvöldið tekið á hótelinu eftir langan dag.

19 nóvember 2027

Það er mögnuð upplifun að ganga yfir regnskóg en í dag förum við þar sem er búið að búa til brýr og göngustíga fyrir ofan regnskóginn. Einstök lífsreynsla sem mun aldrei gleymast. Þetta er ekki erfið ganga og mikilvægt er að vera með sjónauka til að sjá allt dýralífið sem verður fyrir neðan okkur.
Frjáls eftirmiðdagur annað hvort á hótelinu eða inní La Fortunabæ þar sem er að finna marga bari og skemmtilegar búðir þar sem hægt er að versla.
20 nóvember 2027
Heimsækjum sjálfbæran sveitabæ þar sem þau rækta þjóðardrykk Kosta Ríka: kaffi. Landið er þekkt fyrir að rækta bestu kaffibaunir í heiminum. Við fáum að smakka mismunandi kaffi en fyrir þau sem drekka ekki kaffi þá eru ræktaðar kakóbaunir á bænum líka. Þannig við náum að blanda saman kaffi og súkkulaði. Við förum líka í sérstaka súkkulaðikynningu og smökkum mismunadi gerðir.
Frjáls eftirmiðdagur á Arenalsvæðinu.

21 nóvember 2027

Höldum vestur á bóginn og keyrum í átt að Kyrrahafinu þar sem við gistum síðustu þrjár næturnar í Kosta Ríka. Á leiðinni stoppum við í Centro de Rescate Las Pumas, en það er dýraathvarf.
Þýsk hjón hófu að bjarga dýrum á þessu svæði um 1960 og síðan hefur það undið uppá sig. Hjónin eru bæði fallin frá en stofnunin heldur áfram. Heillandi staður sem manni líður betur eftir að hafa heimsótt.
Keyrum síðan áfram í átt að hótelinu okkar í Tamarindo sem er í bær við ströndina. Tamarindobær er þekktur fyrir líflegt mannlíf, góða veitingastaði og skemmtilega bari. Kvöldið notum við til að slappa af eða fara út á lífið.
22 nóvember 2027
Afslappandi dagur á ströndinni eða við sundlaugarbakkann á hótelinu. Það er einnig möguleiki að fara í köfun eða eitthvað sem ykkur langar til.

23 nóvember 2027

Sigling á Kyrrahafinu í snekkju með ferðafélögum þínum. Förum að morgni á snekkju í stuttri fjarðlægð frá hótelinu. Borðum hádegisverð á bátnum og auðvitað verður barinn opinn.
Hægt að stinga sér til sunds og snorkla í kristaltæru Kyrrahafinu. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður þar sem við erum því miður að kveðja þetta einstaka land.
24 nóvember 2027
Hægt að njóta morgunsólarinnar og fara í sjóinn því flugið er ekki fyrr en eftir hádegi. Tekur um klukkustund að keyra á flugvöllinn þar sem við fljúgum með WestJet til Toronto. Flugið tekur um fimm tíma.
Lendum að kvöldi í Toronto og förum á Alt hótelið til að gista í eina nótt.

25 nóvember 2027

Dagsferð að Nigarafossum fyrir þá sem velja það. Frábær ferð þar sem við borðum hádegisverð í um 150 metra hæð yfir fossunum. Siglum að fossunum, smökkum hlynsíróp og förum í kynningu á ísvíni.
Frjáls tími í litlum bæ sem heitir Niagara on The Lake. Fyrir þau sem vilja versla þá er möguleiki að koma með og fara í outlet verslunarmiðstöð og eyða deginum þar. Fljúgum heim um kvöldið með Icelandair
26 nóvember 2027
Lendum snemma að morgni í Keflavík eftir frábæra ferð til Kosta Ríka.

