top of page
Majestic waterfall in the rainforest jungle of Costa Rica. Tropical hike..jpg

Ferð til Kosta Ríka 

​í maí 2024

 

Ekkert staðfestingargjald. 

Hægt er að skipta greiðslum í allt að 3 hluta, með sveigjanlegum greiðsluleiðum. 

Cal icon.png

8.-20. maí 2024

TVÆR VIKUR | Hvítasunnuferð 

Cc icon.png

VERР649.900 KR. á mann

*149.900 KR. aukalega fyrir einbýli.

Sveigjanlegar greiðslur. Sjá nánar

Bóka icon.png

  UPPSELT  

UM FERÐINA

Kosta Ríka: "Pura Vida" er slagorð landsins sem hægt er að þýða á svo marga vegu. Það lýsir landinu svo vel, þetta fallega, hreina og óspillta land með sína ólýsanlegu náttúrufegurð.   Fyrir utan alla náttúrufegurðina og dýralífið þá er mannlífið einnig stórkostlegt.

 

Kosta Rika er eitt af fáum ríkjum heims sem  eins og Ísland er ekki með her og þú finnur fyrir öryggi í landinu. Regnskógar, eldfjöll, dýralíf, mannlíf og Kyrrahafið í þessari einstöku ferð til Kosta Ríka með Kúbuferðum-2Go Iceland þar sem nærð að kynnast landinu og fólkinu á sama tíma þú nærð að slappa af.  

Ferðin er skipulögð þannig að hún hentar öllum. Ef þig langar að taka því rólega og fara í styttri göngur þá er þetta frábær ferð því þú færð að upplifa margt án þess að þurfa að fara í langar gönguferðir. Ef þig hinsvegar langar að leggja meira á þig þá er hægt að bæta við gönguferðum og afþreyingu á öllum stöðum sem við gistum á. Einnig gistum við í tvær til þrjár nætur á öllum stoppum í Kosta Ríka nema fyrstur nóttina sem þýðir að við þurfum ekki að pakka á hverju kvöldi. Við viljum frekar kynnast nokkrum héruðum vel frekar en að reyna að sjá allt. 

Komdu með til Kosta Ríka, litla landsins með stóra hjartað.

Fararstjóri
Guðni Kristinsson

Gudni kristinsson Kubuferdir leiðsögumaður.webp

Hópstjóri
Juan Carlos Suarez Leyva

Carlos.jpg

FERÐALÝSING

Ferðatímabil: Maí 2024 (Bæði uppstigningar-og annar í hvítasunnu frídagar. Þarf bara að taka sex daga í frí frá vinnu).

Hópstærð: hámark 22 farþegar.

Innifalið í verði:

  • Flug frá Íslandi til Toronto og til baka með Icelandair. Innrituð taska 23 kg og ein handfarangurstaska.

  • Flug frá Kanada til Kosta Ríka og til baka með Westjet. Innrituð taska 23 kg og ein handfarangurstaska.

 

Í Kanada: 

  • Gisting í eins eða tveggja manna herbergjum án morgunverðar á Alt Hotel Toronto í tvær nætur. 

Í Kosta Ríka: 

  • Akstur til og frá flugvelli

  • Ferðmannaskattur 

  • Allar ferðir og skemmtanir/afþreying sem eru í ferðalýsingu 

  • Gisting í 9 nætur á frábærum hótelum  

  • Morgunmatur alla daga

  • Upphafs-og lokakvöldverður

  • Þrír hádegisverðir

  • Íslensk farartjórn

  • Innlend staðarleiðsögn

Ekki innifalið:

  • eTA umsókn til Kanda (kostar $7 CAD). Við sendum allar upplýsingar, ekki sækja um sjálf. 

  • Þær máltíðir sem ekki eru taldar upp í innifalið, drykkjarföng og persónuleg útgjöld.

  • Afþreying og skemmtanir á eigin vegum

  • Sérferð til Niagarafossa (viðbót)

  • Þjórfé í Kosta Ríka 

  • Forfalla- og ferðatryggingar (kreditkorta-og heimilstryggingar eru yfirleitt nóg)

Gistingar í Kosta Ríka

Kosta Ríka Hótel 5.jpg
Kosta Ríka Hótel 6.jpg
Kosta Ríka Hótel 7.jpg
Kosta Ríka Hótel 8.jpg
Kosta Ríka Hótel 9.jpg
Kosta Ríka Hótel 10.jpg
Kosta Ríka Hótel 13.jpg
Kosta Ríka Hótel 11.jpg
Kosta Ríka Hótel 12.jpg

ATH: Öll herbergin hafa loftkælingu, þægileg rúm og eru þrifin á hverjum degi. Öll hafa sundlaugar/heita potta og mörg hver aðra líkamsræktaraðstöðu. Góðir veitinarstaðir á öllum hótelum. Morgunmatur er innifalinn alla daga. 

DAGSKRÁ FERÐAR

GISTISTAÐIR

  • 2 nætur í Toronto, Kanada

  • 1 nótt í Liberia

  • 2 nætur í Ricon de la Vieja

  • 3 nætur í La Fortuna

  • 3 nætur við Tamarindo strönd

Kosta Ríka 34.jpg

8.maí | Dagur 1

Flug frá Íslandi til Kanada með Icelandair

17:05 Reykjavík (KEF)

19:10 Toronto (YYZ)

Flugtími 5 klst., 55 mín, beint flug

 

Síðdegisflug til Toronto með Icelandair frá Keflavík. Lendum í borginni um kl 18:00 og eftir landamæraeftirlit förum við saman í loftlest á Alt Hótel sem er nálægt flugvellinum. Frjálst kvöld í Toronto þar sem þið getið slappað af eða farið niður í bæ og  upplifað þessa frábæru stórborg. Góður ítalskur veitingastaður er á hótelinu. 

Kosta Ríka Alt Hotel Toronto 17.jpg

9.maí | Dagur 2

Förum snemma saman út á flugvöll. Hægt er að kaupa léttan morgunverð á hótelinu en eftir innritun eru margir veitingastaðir sem bjóða uppá mat. Fljúgum með WestJet til Liberia borgar í norðvestur Kosta Ríka. Flugið er um 5 klst og lendum um kl 14:00.

 

Hittum leiðsögumanninn okkar á vellinum og keyrum þaðan á Hilton Inn hótelið. Gönguferð um Liberiuborg þar sem við fáum fyrsta smjörþefinn af menningunni í Kosta Ríka. Kynning á ferðinni þegar við komum á hótelið og sameiginlegur hópkvöldverður.

Kosta Ríka 30.jpg

10.maí | Dagur 3

Keyrum norður í þjóðgarðinn Rincón de la Vieja þar sem er finna einstakt dýralíf auk afþreyingar.  Við förum í gönguferð um skýjaregnskóginn í þjóðgarðinum þar sem þið munið sjá fjölbreytt dýralíf t.d. er möguleiki að sjá letidýr í sínu náttúrulega umhverfi. Ef útsýnið er gott þá sjáum við eldfjöllin í fjarlægð.

 

Gistum í tvær nætur á Blue River Resort & Hot Springs sem er með fullt af náttúrlaugum þar sem gott er að hvíla lúin bein eftir göngu dagsins.

Kosta Ríka 20.jpg

11.maí | Dagur 4

Gönguferð að La Catedralfossum sem þræðir okkur í gegnum frumskóginn í þessu undralandi. Dýra-og plöntulífið er ótrúlegt og  þar  eiga allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þeir sem vilja geta stungið sér til sunds við fossinn eftir gönguna.

 

Borðum hádegisverið úti í náttúrunni áður en við höldum aftur heim á hótelið okkar. Frjáls eftirmiðdagur til að slappa af í laugum hótelsins eða heimsækja fiðrildagarðinn sem er við hótelið.

Kosta Ríka 21.jpg

12.maí | Dagur 5

Þennan dag erum við að færa okkur á milli svæða þannig þetta er lengsti keyrsludagurinn en við ætlum líka að upplifa margt á leiðinni. Keyrum til fenjasvæðis Caño Negro Refuge sem er nálægt landamærunum að Nigaragua.

 

Þar er hægt að sjá skjaldbökur, jagúar, tígurketti og krókudíla. Við förum í siglingu á fenjasvæðinu þar sem gefst góður tími til að ná myndum af fuglalífinu. Þetta er svæði sem færri koma á, og er einstök upplifun.

 

Eftir það keyrum við átt að Arenalsvæðinu og bænum La Fortuna þar sem við gistum í þrjár nætur á Los Lagos Hotel Spa & Resort. Algjör paradís með útsýni að eldjallinu. Kvöldið tekið á hótelinu eftir langan dag.

Kosta Ríka 22.jpg

13.maí | Dagur 6

Það er mögnuð upplifun að ganga yfir regnskóg en í dag förum við þar sem er búið að búa til brýr og göngustíga fyrir ofan regnskóginn. Einstök lífsreynsla sem mun aldrei gleymast. Þetta er ekki erfið ganga og mikilvægt er að vera með sjónauka til að sjá allt dýralífið sem verður  fyrir neðan okkur.

 

Frjáls eftirmiðdagur annað hvort á hótelinu eða inní La Fortunabæ þar sem er að finna marga bari og skemmtilegar búðir sem hægt er að versla. 

Kosta Ríka 23.jpg

14.maí | Dagur 7

Heimsækjum sjálfbæran sveitabæ þar sem þau rækta þjóðardrykk Kosta Ríka: kaffi. Landið er þekkt fyrir að rækta eitt bestu kaffibaunir í heiminum. Við fáum að smakka mismunadi kaffi en fyrir þau sem drekk ekki kaffi þá eru ræktaðar kakóbaunir á bænum líka. Þannig við náum að blanda saman kaffi og súkkulaði. Við förum líka í sérstakan súkkulaðikynningu og smökkum mismunadi gerðir. 

Frjáls eftirmiðdagur í Arenalsvæðinu 

Kosta Ríka 32.jpg

15.maí | Dagur 8

Höldum vestur á bóginn og keyrum í átt að Kyrrahafinu þar sem við gistum síðustu þrjár næturnar í Kosta Ríka. Á leiðinni stoppum við í Centro de Rescate Las Pumas, en það er dýraathvarf.

 

Þýsk hjón hófu að bjarga dýrum á þessu svæði um 1960 og síðan hefur það undið uppá sig. Hjónin eru bæði fallin frá en stofnunin heldur áfram. Heillandi staður sem manni líður betur eftir að hafa heimsótt.

 

Keyrum síðan áfram í átt að hótelinu okkar, Tamarindo Diria Beach Resort sem er í bæ við ströndina. Tamarindobær er þekktur fyrir líflegt mannlíf, góða veitingastaði og skemmtilega bari. Kvöldið notum við til að slappa af eða fara út á lífið.

Kosta Ríka 26.webp

16.maí | Dagur 9

Afslappandi dagur á ströndinni eða við sundlaugarbakkann á hótelinu. Það er einnig möguleiki að fara í köfun eða eitthvað sem ykkur langar til. 

Kosta Ríka 27.jpg

17.maí | Dagur 10

Sigling á Kyrrahafinu í snekkju með ferðafélögum þínum. Förum að morgni á snekkju í stuttri fjarðlægð frá hótelinu. Borðum hádegisverð á bátnum og auðvitað verður barinn opinn.

 

Hægt að stinga sér til sunds og snorkla í kristaltæru Kyrrahafinu. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður þar sem við erum því miður að kveðja þetta einstaka land.

Kosta Ríka 28.jpg

18.maí | Dagur 11

Hægt að njóta morgunsólarinnar og fara í sjóinn því flugið er ekki fyrr en eftir hádegi. Tekur um klukkustund að keyra á flugvöllinn þar sem við fljúgum með WestJet til Toronto. Flugið tekur um fimm tíma.

 

Lendum að kvöldi í Toronto og föru á Alt hótelið til að gista í eina nótt.

Kosta Ríka 31.jpg

19.maí | Dagur 12

Dagur til að versla í Toronto. Er hægt að taka leigubíl í Square One verslunarmiðstöðina. Öll herbergin eru með síðbúna útritun klukkan 15:00.

Þeir sem vilja fara til Niagarafossa eða inní Toronto get það. Við skipuleggjum það í samráði við ykkur. 

Fljúgum heim um kvöldið með Icelandair

Square one toronto

20.maí | Dagur 13

Lendum snemma að morgni í Keflavík eftir frábæra ferð til Kosta Ríka. 

Toronto airport.jpg
bottom of page